Laugardaginn 1. október næstkomandi mun Körfuknattleiksdeild ÍR í samstarfi við Karfan.is standa að fyrsta Íslandsmótinu í skotkeppninni Stinger (Bolli). Mótið mun fara fram í Seljaskóla í Reykjavík og mun sigurvegari mótsins verða krýndur Íslandsmeistari í Stinger.
Til mikils er að vinna en sigurvegarinn mun fá til sín 33% af þátttökugjaldi mótsins. Skotkeppnin Stinger er öllum kunn, þar keppist fólk við að skjóta hvert annað úr leik og á mótinu verður skotið frá þriggja stiga línunni.
Skráningargjld í mótið verður kr. 500,- og mun eins og áður segir sigurvegarinn fá til sín 33% ágóðans. Hinum hlutunum verður svo varið til góðgerðamála af vali sigurvegarns og svo í framkvæmd mótsins.
Skráning í mótið mun fara fram á staðnum.
Stinger reglur:
-Skotkeppni til síðasta manns.
-Skotið er frá þriggja stiga línunni.
-Þú mátt skjóta þínu skoti um leið og aðilinn fyrir framan þig hefur tekið sitt skot
-Ef skotið þitt geigar átt þú að ná í frákastið og reyna að skora… ef að aðilinn fyrir aftan þig skorar á undan þér ert þú úr leik.
-Ekki má að þóþörfu trufla andstæðinginn eða með einhverjum hætti viljandi bæjga boltanum hans frá eða trufla skot hans með nokkrum hætti.
Allar nánari upplýsingar um mótið fást á nonni@karfan.is eða hjá viddif@gmail.com.