Æfingin þann 24. apríl

Það var frekar léleg mæting, enda margir að horfa á leik Man. U. og AC. En við höfðum ekki áhyggjur af þessu enda vitað mál að Man. U. myndi vinna. En Sverrir Þ. fór með sigur af hólmi í þetta skipti en Sverrir Örn og Varði voru þó ekki langt undan. En svona fór einstaklingsmótið.

1. Sverrir Þ. 9 v.
2. Sverrir Örn 8 v.
3. Varði með 7 v.
4. Ingi með 5,5 v.
5. Marteinn með 4,5 v.
6. Guðmundur með 3,5 v.
7. Geir með 3 v.
8. Kristján með 2,5 v.
9. Stefán P. með 2 v.
10. Rúnar með 0 v.

Því næst var ákveðið að taka smá liðakeppni og voru þá 6 manns eftir en svona skiptist í lið: Marteinn, Sverrir Þ. og Geir(MSG) á móti Varða, Inga og Kristjáni(VIK). Fyrstu tvær umferðirnar unnu MSG 2 – 1. Staðan þá orðinn 4 – 2 MSG í vil. VIK komum sterkir inn í seinustu umferðinni og unnu 3 – 0 Og unnu þar með liðakeppina.

En áhugi var fyrir því að taka smá tvískák. En eftir tvær umferðir af þriggja liða keppni í tvískák. En Kristján og Sverrir komu sterkir inn í seinni umferðinni, eftir vinningslausa fyrri umferð og unnu báðar skákirnar. Varði og Geir unnu fyrri umferðina en fóru alveg flatt úr seinni. Ingi og Marteinn unnu einn sigur úr hverri umferð og varð því allsherjar jafntefli.

Ég þakka fyrir góða og skemmtilega æfingu og vona að sem flestir komist á næsta þriðjudag, kl. 19:30 á Ásvöllum.