Árni vann frestuðu skákina

Halldór Gunnar Haraldsson og Árni Þorvaldsson áttust við í frestaðri skák úr 3.umferð í boðsmótinu á föstudagskvöldið. Svo fór að Árni vann í endatafli. Það er því ljóst að Sverrir Örn og Árni munu tefla hreina úrslitaskák um sæti í A-flokknum í síðustu umferðinni. Sverri, sem mun stýra hvítu mönnunum, dugir jafntefli í skákinni.

Staðan í A-riðli:

Sigurbjörn 3+fr.
Sverrir Örn 3
Árni 2,5
Sverrir þ. 1,5
Guðmundur 1+fr.
Halldór 0