Árleg jólaveisla Kkd. Hauka 19. desember

Jólaveisla körfuknattleiksdeildar Hauka verður nú haldin í þriðja árið í röð og verður dagsetningin í ár föstudagskvöldið 19. desember.

Boðið verður upp á sama mat og undanfarin ár þ.e. Hamborgarahryggur og Hangikjöt og meðlæti með. Að sjálfsögðu munu sömu kokkar og vanalega standa vaktina í eldhúsinu. Veislan verður í veislusal Hauka að Ásvöllum.

Eins og undanfarin ár verða körfuknattleiksfólk Hauka fyrir árið 2008 kynnt í jólaveislunni en þau sem hljóta þann heiður verða í kjöri fyrir íþróttamann Hauka fyrir árið 2008.

Mynd: Frá jólaveislunni í fyrrastefan@haukar.is

Í ljósi efnahagsástands mun kosta inn í ár og verður verðinu stillt í hóf eða aðeins 1.500 krónur á hvern einstakling. Það er mikilvægt að þeir sem koma til með að mæta skrái sig á emil@haukar.is eða á stefan@haukar.is og eru skráningar nú þegar hafnar.

Í skráningu skal taka fram fyrir hve marga er pantað.

Jólaveislunefndin.


Eitt skemmtiatriðanna í fyrra var spurningakeppni meistaraflokkana. Hér er lið meistaraflokks karla.


Meistaraflokksþjálfararnir Yngvi Gunnlaugsson og Henning Henningsson tóku einn léttan sjómann í veislunni í fyrra. Það var ekkert gefið eftir.