Sigurður Þór Einarsson hættir

CI5A0082Sigurður Þór Einarsson hefur ákveðið að setja skóna á hilluna frægu og mun ekki taka slaginn með Haukaliðinu á komandi tímabili í Domino‘s deild karla. Þetta tjáði hann leikmönnum og þjálfurum nú í vikunni. Sigurður telur að hann geti ekki komið til með sinna körfuboltanum að sama krafti og hann hefði viljað og eftir 16 ár í meistaraflokki væri kominn tími til að prófa eitthvað annað.

Sigurður kom til liðs við Hauka fyrir tímabilið 2003-2004 frá Njarðvík þar sem hann ól manninn. Sigurður spilaði með Haukum út tímabilið 07-08 og hélt þá til Danaveldis í nám og spilaði með Horsens IC. Sigurður kom svo aftur til liðs við Hauka 2013 og hefur verið með liðinu síðan. Alls hefur hann spilað 212 leiki fyrir meistaraflokk Hauka

Kkd. Hauka þakkar Sigurði kærlega fyrir virkilega vel unnin störf fyrir klúbbinn og óskar honum velfarnaðar í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur.