Haukar völtuðu yfir FH

Hafi Hafnfirðingum ekki verið það ljóst fyrir leik FH og Hauka, í N1-deild karla í handbolta síðast liðin laugardag, hvort liðið væri öflugra um þessar mundir þá fengu þeir skýr svör frá þeim rauðklæddu.

Haukar hreinlega völtuðu FH-inga á þeirra eigin heimavelli en lokatölur voru 31-18. Munurinn var mestur 15 mörk í stöðunni 30-15 en Haukar slökuðu aðeins á í lokin og FH-ingar löguðu stöðuna.

Heimamenn voru með miklar yfirlýsingar fyrir leikinn og verður ekki farið nánar út í þær hér en segja má að þær hafi svo sannarlega kveikt í okkar mönnum sem hreinlega fóru hamförum í leiknum þrátt fyrir kannski smá stress í byrjun. Það skal þó enginn velgjast í vafa um að FH-liðið er gott þó svo að þeir hafi steinlegið í þessum leik og ekki náð sér á strik.

Flestar helstu sportsíður landsins voru með greinargóðar umfjallanir um leikinn og má nálgast þær með því að smella á tenglana hér að neðan:

Handbolti.org umfjöllun

Handbolti.org – Myndaveisla

Handbolti.org – viðtal við Elías Má

Vísir.is – ufmjöllun og viðtöl

Sport.is – umfjöllun og myndir