Yfirlýsing frá Hkd. Hauka og FH

Haukar„Yfirlýsing frá handknattleiksdeildum FH og Hauka vegna leiks FH og Hauka í 8 liða úrslitum Eimskipabikarkeppninnar sem fór fram í Kaplakrika sunnudaginn 7. desember sl.:

Deildirnar þakka þeim fjölmörgu stuðningsmönnum félaganna sem mættu og studdu dyggilega við bakið á sínum liðum á sunnudag og hjálpuðu til við að mynda frábæra stemningu á vellinum. Leikir FH og Hauka í handknattleik hafa jafnan verið góð auglýsing fyrir íþróttina og síðustu tvær viðureignir liðanna eru engar undantekningar á því.

Því miður áttu sér stað nokkur leiðinda atvik undir lok leiksins sem félögin harma og munu taka á innan sinna raða. Félögin leggja mikla áherslu á að leikmenn séu börnum og unglingum jákvæðar fyrirmyndir innan vallar sem utan. Það er von félaganna að þessi atvik varpi hvorki skugga á frábæran handboltaleik né dragi úr þeim meðbyr sem handknattleiksíþróttin hefur notið undanfarin misseri. Félögin munu hér eftir sem hingað til leggja áherslu á að stuðla að skemmtilegri og fjölskylduvænni umgjörð leikja. Við hvetjum alla handknattleiksunnendur og fjölmiðla til leggja okkur lið í þeirri viðleitni og vonum að árangurinn birtist í enn frekari aukningu iðkenda og áhorfenda.

Virðingarfyllst,

Þorgeir Arnar Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH.
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka.“