YFIRBURÐIR

Í dag áttust við Haukar og Valur og áttu okkar stelpur ekki í vandræðum með að vinna stórsigur og það í báðum liðum. Mótspyrnan var ekki mikil og þurftu okkar stelpur ekki að hafa mikið fyrir sigrinum. Valsliðið var ótrúlega slakt eða eins og Kr-liðið og vaknar sú spurning hvað eru stúlkurnar að læra hjá þessum félögum, en Haukastúlkur hafa unnið sína heimavinnu. A-liðið vann 12-1 og b-liðið 9-0.