Vel heppnað Pæjumót

Pæjumótið á Siglufirði fór fram um helgina í frábæru veðri. Fólk man varla eftir betra veðri á Siglufirði helgina sem mótið fer fram.
Fimm bikarar bættust í safn verðlaunagripa deildarinnar. 3. flokkur B sigraði í sínum flokki á mótinu en A liðið þurfti að horfa á eftir sigri þegar lið KS hafði betur í hlutkesti.
Stelpurnar í 4. flokk A sigruðu sinn riðil án þess að fá á sig mark en það gaf þeim sæti í fjögura liða úrslitum. Stelpurnar þurftu eins og 3. flokkurinn að horfa á eftir sigri í hendur FH-inga sem töpuðu síðan úrslitaleik gegn HK. 4. flokkur A spilaði seinni hluta mótsins án Katrínu Huld Guðmundsdóttur en hún var spörkuð niður í leik Hauka Fjölnis, Haukar unnu leikinn 1 – 0 en sigur Hauka hefði getað orðið mun stærri.
4. flokkur B hafnaði í þriðja sæti eftir 3 – 0 sigur á liði Breiðabliks.
5. flokkur C hafnaði í öðru sæti í sínum flokk en þar sem Haukar áttu tvö lið í úrslitaleik um þriðja sæti var settur á leikur milli Haukastelpna og foreldra sem var hin mesta skemmtun.

Veðrið lék við gesti mótsins eins og áður hefur komið fram og margir sólbrunnir eftir helgina. Að þessu sinni reistu Haukaforeldrar tjaldbúðir sínar á flötinni fyrir framan Þormóð Ramma Sæberg hf. og verður þessi staðsetning einnig í boði að ári. Stemmingin í hópnum var frábær og allir þeir foreldrar sem tóku að sér foreldrastjórnarhlutverk og skipulagningu á tjaldstæði eiga mikið hrós skilið.