Valur-Haukar mfl. karla

Strákarnir okkar unnu frábæran tíu marka sigur 33-23 á Val í Valsheimilinu í kvöld.

Valur byrjaði betur 3-1 og 4-2. Haukar jöfnuðu 4-4 og komust yfir 4-5 og eftir það létu þeir forystuna aldrei af hendi. Í hálfleik var staðan 13-15 og komu strákarnir okkar fullir sjálfstrausts til leiks í seinni hálfleik. Þeir juku forskotið jafnt og þétt 15-20, 17-25 og lokatölur stórsigur 23-33.

Á fundi með stuðningsmönnum s.l. mánudagskvöld lofuðu strákarnir að taka til hjá sér eftir arfaslaka byrjun. Þeir stóðu við stóru orðin og mættu vel stemmdir til leiks og spiluðu sem liðsheild sem skilaði góðum sóknarleik og fantavörn með Birki Ívar í banastuði fyrir aftan. Góð stemming hjá strákunum okkar skilaði sér í pallana og voru áhorfendur bara nokkuð duglegir að hvetja.

Áfram Haukar.

Valur-Haukar mfl.karla

Það var boðið uppá frábæran leik þegar Haukar og Valur mættust á Hlíðarenda í kvöld. Staðan í hálfleik var 14-15 og endaði leikurinn með jafntefli 27-27 . Strákarnir okkar voru að spila vel, bæði í vörn og sókn en hlutirnir voru ekki að falla okkar megin og má kannski segja að jafntefli hafi verið ásættanlegt út frá því.