Valur-Haukar 4-liða úrslit kvenna

Stelpurnar okkar unnu góðan sigur 26-17 á Val í Valsheimilinu í kvöld og tryggðu sér þar með sæti í úrslitaleikjunum um Íslandsmeistaratitilinn.

Þær mættu fremur rólegar til leiks og var jafnræði með liðunum fyrri hluta hálfleiksins. Þær sigu síðan rólega framúr og voru komnar með örugga forystu í hálfleik 7-12. Í seinni hálfleik héldu þær forystunni örugglega og náði Valur aldrei að ógna forskotinu.

Glæsilegur sigur og frábært hjá stelpunum að vera komnar í úrslitaleikina. Þar mæta þær annað hvort ÍBV eða Stjörnunni en það ræðst í oddaleiki liðanna á laugardag.