Valur-Haukar 4-liða úrsl. karla

Í kvöldu unnu strákarnir okkar frábæran sigur 27-29 í baráttuleik við Val á Hlíðarenda. Þeir unnu 4ra-liða úslitin því 2-0 og tryggðu sér á glæsilegan hátt sæti í úrslitaleikjunum.

Fyrri hálfleikur var fremur slappur hjá okkar mönnum. Vörnin var götótt og sóknin var ekki að ganga enda skorðu þeir ekki nema 12 mörk í hálfleiknum. Fyrri hálfleikurinn var samt jafn að mestu og var staðan 11-11 þegar um 23 mín. voru búnar. Síðustu 7 mín. voru ansi slakar hjá okkar mönnum og Valur var með 3ja marka forystu 15-12 þegar flautað var til hálfleiks.

Ekki byrjaði síðari hálfleikurinn vel hjá okkar mönnum. Þegar 2 mín voru liðnar var staðan 17-12 og svo 18-13. Fimm mörkum undir og útlitð ekki gott hjá Haukum. En strákarnir okkar gefast að sjálfsögðu ekki upp. Þeir vöknuðu, hristu sig saman og sýndu frábær tilþrif og sneru leiknum við. Þeir tóku á í vörninni og þá kom markvarslan og sóknin skilaði sínu. Þegar um 10 mín voru liðnar af seinni hálfleik var staðan 20-19 og jöfnuðu Haukar síðan 21-21. Þeir komust yfir 21-22 og eftir það var ekki litið um öxl. Þeir juku forystuna í 22-26 og héldu haus það sem eftir lifði leiks og unnu glæsilegan sigur.

Í úrslitunum mæta strákarnir okkar annað hvort ÍR eða ÍBV en það ræðst í oddaleik þeirra liða á sunnudag. Fyrsti leikur í úrslitum verður síðan eftir rúma viku eða laugardaginn 30. apríl á Ásvöllum.

Það er stórglæsilegt að bæði stelpurnar okkar og strákarnir okkar taki þátt í úrslitaleikjunum. Við bíðum spennt eftir að úrslitin byrji og þá ætlum við að skemmta okkur og hafa mikið gaman.

Áfram Haukar