Uppskeruhátíð yngri flokka körfuknattleiksdeildar Hauka verður haldin hátíðleg þriðjudaginn 12. maí kl. 17:00 í íþróttasal Schenkerhallarinnar.
Veitt verða einstaklingsverðlaun en auk þess munu allir iðkendur í minniboltum fá verðlaun fyrir góðan árangur og ástundun í vetur.
Boðið verður uppá grillaðar pyslur og svala í lokin.
Foreldrar eru hvattir til að mæta og taka þátt í hátíðinni með okkur og krökkunum.
Farið verður í Bolla.