Sunnudaginn 12. september kl. 14:00 verður uppskeruhátíð barna haldin í íþróttahúsinu að Ásvöllum. Verðlaunaafhending fer að venju fram í aðalsal hússins og að henni lokinni verður kökuhlaðborð í veislusal hússins.
Foreldrar eru kvattir til þess að mæta með börnum sínum þannig að hátíðin verði sem veglegust. Eins og hefur verið undanfarin ár er hver fjölskylda beðin um að koma með eina köku með sér og á að skila þeim í veislusalinn kl. 13:30.
Sjáumst hress á uppskeruhátið barnanna 12. sept. kl. 14:00.