Haukar sigruðu á Tindsmótinu
Haukar sigruðu á Tindsmóti HK í meistaraflokki karla sem haldið var í annað skipti í Fífunni sunnudagin 11 des, en þar var leikið í 7 manna liðum og á stór mörk. Haukarnir mættu liði HK-1 í úrslitaleik mótsins og unnu þar stórsigur, 6-0.
Selfyssingar hrepptu þriðja sætið með því að sigra HK-2 í leik um það, 3-2. Haukarnir fengu eignabikar og leikmenn liðanna í þremur efstu sætunum fengu allir eintak af bókinni Íslensk knattspyrna 2005 en það var Bókaútgáfan Tindur sem gaf öll verðlaun í mótið.