Þorvarður Fannar Ólafsson kom engum á óvart og sigraði Áskorendaflokk ásamt Jóni Árna Halldórssyni með 7 vinninga af 9 mögulegum. Þeir tryggðu sér þar með þáttökurétt í landsliðsflokki að ári. Þetta er í annað sinn á þremur árum sem Þorvarður vinnur sér þáttökurétt í landsliðsflokki.
Þorvarður tefldi mjög vel og örugglega í mótinu og var vel að sigrinum komin.
Sverrir Örn Björnsson og Stefán Freyr Guðmundsson tóku einnig þátt og var Sverrir allan tímann í toppbaráttunni en slæmt tap í næstsíðustu umferð gerði vonir hans um sigur að engu. Sverrir lenti í fjórða sæti með 6 vinninga. Stefán náði sér aldrei á strik eftir tvö töp í fyrstu fjórum umferðunum, en kemur án efa sterkari til leiks í næsta móti.