Á föstudagskvöldið tóku okkar menn á móti Valsmönnum í þriðju umferð 1.deildar. Aðstæður til fótboltaiðkunar voru vægast sagt lélegar enda fór leikurinn aldrei á neitt flug. Leikurinn var á heildina mjög tilþrifalítill og bragðdaufur. Gestirnir skoruðu eina mark leiksins um miðjan fyrri hálfleik eftir nokkuð þunga sókn að marki Haukanna. Seinni hálfleikur einkenndist af miklum barningi og miðjuþófi. Valsmenn áttu tvö bestu færi hálfleiksins, annars vegar skot í þverslá og svo varði Jöri mjög vel frá einum Valsara í dauðafæri. Annars voru Haukar meira með boltann í seinni hálfleik án þess þó að ná að skapa mikla hættu við mark gestanna.
Úrslitin sem sagt 0-1 fyrir gestina og annar tapleikur okkar á heimavelli staðreynd. Næsti leikur er á útivelli gegn HK á föstudaginn, og þar verða okkar menn að ná í þrjú stig. Að sjálfsögðu ætla allir Haukamenn að fjölmenna á þann leik.