1. deild karla. Ásvellir 11. júní 2005.
Lið Hauka
Krókódíllinn –
Pétur, Svavar S (Davíð Ellerts 60), Daníel, Geoff Miles –
Hilmar Geir (Ómar Karl 37) , Kristján Ómar, Hilmar Trausti, Betim (Arnar Steinn 64) –
Hilmar Rafn, Rodney Perry.
Næsta sama lið hóf þennan leik og lék þann seinasta, aðeins Betim kom inn fyrir Birgir Rafn sem meiddist í Fjölnissigrinum.
Leikurinn á laugardaginn byrjaði fremur rólega og var nokkuð jafnræði á liðunum, Haukar ívið duglegri að skapa sér færi. Fyrsta almennilega færi Þórsara kom ekki fyrr en á 22. mínútu er Lárus Orri skallaði knettinum yfir markið.
Eftir um hálftímaleik fóru gestirnir að lifna við og náðu að skapa sér nokkur góð færi. Á 44 mínútu fengu þeir hornspyrnu sem endaði með skoti af stuttu færi sem Jörundur gerði vel að verja út í teig. Þaðan náðu Þórsarar skoti í slána og aftur barst boltinn út í teig sem endaði á ný með skoti í ofanverða slánna. Í slagnum um frákastið voru Þórsara sterkari og náði Ingi Hrannar Heimisson að skalla knettinum inn í netið. Hálfleiksstaðan 0-1
Á upphafsmínútum seinni hálfleiks komst sóknarmaður Þórsara Donys tvígang í gott færi en náði ekki í hvorugt skiptið að koma gestunum tveim mörkum yfir.
Á seinustu 15 mínútunum áttu Haukastrákarnir nokkur tækifæri á að jafna leikinn. Næstur því komst Hilmar Rafn á 76 mínútu er hann skyndilega var kominn á auðan sjó inn í teig Þórsara og reyndi að vippa knettinum yfir markmann Þórs. Allt leit út fyrir að boltinn væri að leiðinni í netið en lukkan var ekki með okkur í þetta skiptið og datt knötturinn loks ofan á markslánni. Okkar menn voru nokkrum sinnum nálægt því að ná að jafna leikinn en allt kom fyrir ekki. Engin fleiri mörk litu dagsins ljós.
Tap á heimavelli staðreynd, lokatölur því 0-1.