Sverrir sigraði á skákævintýri

Sverrir Þorgeirsson stóð sig frábærlega þegar hann sigraði í elsta flokki Skákævintýris í eyjum nú síðustu helgi.

Sverrir fékk samtals 7,5 vinning af 9 mögulegum og varð einn efstur. 5 aðrir Haukamenn tóku þátt í mótinu og stóðu þeir sig misjafnlega en þó mjög vel í liðakeppninni þar sem lið Haukamanna lentu í 4 sæti í bæði eldri og yngri flokki. Haukarnir sendu hreint lið í eldri flokk skipað þeim Sverri Þorgeir, Kristjáni Ara Sigurðssyni, Geir Guðbrandssyni og Herbert Inga Sigfússyni.

Þeir Arnór Ingi Björnsson og Jón Hákon Richter voru svo helmingur sveitarinnar Jong Bojs sem var svo líka með einn meðlim Taflfélags Kópavogs og einn úr Garðabæ og þeir enduðu í 4 sæti í yngri flokki. Þeir stóðu sig svo mjög vel líka í einstaklingskeppninni Arnór með 4 af 9 í flokki krakka fæddra 1993 og Jón Hákon í 10-11 sæti með 5 vinninga af 9.