Sveinn Arnarsson(1615), sem hefur verið á mála hjá Kátu Biskupunum síðastliðið ár, hefur gengið frá félagaskiptum til Hauka. Sveinn hefur tekið þátt í uppbyggingarstarfi Kátu Biskupanna sem forseti félagsins og ýtt félaginu úr höfn með farsællegum hætti.
Ljóst er að Haukamenn koma gríðarsterkir til leiks næstkomandi vetur og Sveinn styrkir D eða E sveitina til muna.