Haukar heimsækja KR-b í kvöld í 16-liða úrslitum Subwaybikar karla.
Leikurinn fer fram í DHL-höll KR-inga og hefst kl. 21:00.
Gengi Hauka í vetur hefur verið afar gott og liðið aðeins tapað einum leik gegn Hamri í uppgjöri toppliðanna í 1. deild karla.
Í 32-liða úrslitum Subwaybikarins unnu þeir Iceland Express-deildar lið Breiðabliks.
Eins og fyrr segir er leikur Hauka og KR-b klukkan 21:00 í kvöld í DHL-höllinni.
Mynd: Kristinn Jónasson að sækja að körfu Laugdæla í 1. deildinni fyrr í vetur – Gísli Freyr Svavarsson