Í kvöld klukkan 20:00 mæta strákarnir okkar liði Vals 2 í Vodafone-höllinni. Þessi leikur er í 32 liða úrslitum SS bikarsins.
Við hvetjum að sjálfsögðu Haukafólk til að mæta á leikinn og styðja okkar menn til sigurs.
En til gamans má geta þá komst Haukar 2 áfram í bikarnum í gær eftir að lið Vals 3 mætti ekki til leiks.
En aftur á móti mætti lið Víkings til leiks á Ásvelli í gær til að leika gegn Haukum U. Leikar þar enduðu 33-23 Víkingum í vil eftir harðan leik.
En yfir 15 brottvísanir voru gefnar í þeim leik, aldeilis nóg að gera hjá riturum leiksins, sem stóðu sig með prýði.
Munu tvö Hauka lið vera í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslitum ? Það mun ráðast í Vodafone-höllinni í kvöld!
Allir á völlinn
ÁFRAM HAUKAR