Strákarnir eru MeistararMeistaranna

Í kvöld unnu strákarnir okkar titilinn Meistarar Meistaranna eftir stórsigur á KA 42-31. Gestirnir skoruðu fyrsta markið en síðan var jafnræði með liðunum í 6-6 en þá náði KA 3ja marka forskoti 7-10 og aftur 10-13. Strákarnir okkar náðu að rétta sinn hlut fyrir hálfleik og breyttu stöðunni sér í hag 17-15. Í seinni hálfleik sýndu okkar menn hvernig skora á mörk en þeir gerðu 25 stykki í seinni hálfleik og áttu KA menn engin svör við öflugu liði Hauka.

Ellefu marka sigur og “dolla” er góða uppskera eftir kvöldið og gott vegarnesti fyrir erfiða Evrópuleiki um helgina.

Markahæstur var Þórir með 12 mörk. Vignir var með 8, Jón Karl 7, Andri Stefan 5, Halldór 5, Vigfús 2, Ásgeir Örn 1, Gísli Jón 1, Pétur Þ 1,