Strákarnir úr í bikarnum

Strákarnir okkar fóru í heimsókn í Vodafone höll Valsmanna í dag og léku í 8 liða úrslitum Eimskipsbikarsins.

Það var Kári Kristján Kristjánsson sem skoraði fyrsta mark leiksins. Okkar menn byrjuðu leikinn mun betur og komust í stöðuna 7-10 þegar um 5 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Valsmenn gáfu þá í og voru komnir yfir áður en flautan gall og staðan í hálfleik var 12-11 Valsmönnum í vil.

Jafnt var á öllum tölum í síðari hálfleik en Valsmenn voru ávallt skrefinu á undan. Þeir náðu mest tveggja marka forskoti, 15-13 og svo síðar 20-18 en okkar menn náðu að minnka muninn en með miklu krafti náðu Valsmenn að sigra með einu marki, 23-22.

Strákarnir okkar eru því úr leik í Eimskipsbikarnum og því ljóst að ekkert lið okkar fer í Höllina í ár.

Markaskorar Hauka:
Arnar Jón 6/12
Sigurbergur 4/10
Andri Stefan 4/11
Kári Kristján 3/4
Freyr 3/5
Arnar Péturs 1/1
Halldór 1/2
Jón Karl 0/1
Gísli Jón 0/3

Magnús stóð í markinu í 45 mínútur og varði 10 skot.
Gísli stóð í markinu í 15 mínútur og varði 6 skot.

Næsti leikur strákanna er á föstudaginn þegar þeir leika gegn Aftureldingu í N1 deildinni á Ásvöllum klukkan 19:15.

Strákarnir úr í bikarnum

Strákarnir okkar léku gegn Fram í undanúrslitaleik SS bikarsins í kvöld. Strákarnir okkar byrjuðu betur og komust í 5-3, 9-6 og 12-7. Þá tóku Framarar kipp og náðu að minnka muninn í 12-11 og jafna svo 13-13. Framarar voru svo komnir yfir í hálfleik, 14-15.

Í síðari hálfleik voru Framarar skrefinu á undan allan tímann. Þeir náðu að auka forskotið í 17-21 og svo 22-26. Þeir voru svo komnir í 23-28 en þá tóku strákarnir okkar aðeins við sér og minnkuðu muninn í 26-29. Lengra komust þeir þó ekki og töpuðu að lokum 27-32.

Það verða því Framarar sem leika í úrslitum gegn Stjörnunni í karlaflokki. Því miður tókst ekki að ná Haukadegi í Höllinni en stelpurnar okkar komust í Höllina og er það ljósi punkturinn í dag.

10. mars er frátekinn hjá öllu Haukafólki!!!

ÁFRAM HAUKAR!!