Á laugardaginn er sannkallað stjörnustríð á Ásvöllum. Haukar mæta þá Stjörnunni í bæði meistaraflokki karla og kvenna í N1-deildinni. Kvennaleikurinn hefst kl. 14:00 og karlaleikurinn kl. 16:00. Hinn örvhenti Arnar Jón Agnarsson er ennþá meiddur og óvíst er um hvort hann geti tekið þátt í leiknum. Adidas ætlar að vera með kynningarstand á leikjunum og gefa vinninga. Einnig mun Adidas gefa fyrstu 150 miðana á hvorn leik fyrir sig. Miðarnir á kvennaleikinn gilda líka á karlaleikinn.
Góðar vítaskyttur geta unnið handbolta frá Adidas.