Í dag var dregið í 8-liða úrslit Subwaybikarins. Haukar fengu heimaleik í kvennaflokki og mæta KR á Ásvöllum.
Strákarnir fengu Iceland Express-deildarlið Njarðvíkur og fer leikurinn fram í Ljónagryfjunni.
Yngvi Gunnlaugsson, þjálfari stelpnanna, sagði við Karfan.is að hann hafi haft það á tilfinningunni að þær fengu KR.
Leikið verður 11. og 12. janúar.