Stórleikur hjá stelpunum

Í kvöld spila stelpurnar okkar gegn liði Stjörnunnar í Mýrinni í Garðabæ. Leikurinn hefst klukkan 18:00.

Fyrir leikinn eru stelpurnar okkar í 5. sæti með 9 stig eftir 9 leiki, 6 stigum á eftir Gróttu sem er í 4. sæti og hefur leikið 10 leiki.
Stjarnan er eins og er í 3. sæti deildarinnar með 15 stig líkt og Grótta. Stjarnan hefur verið á toppi deildarinnar í töluverðan tíma en töpuðu gegn Fram um helgina og féllu þar með niður um tvö sæti.

Okkar stelpur hafa ekki leikið frá því 18. nóvember en þá gerðu þær jafntefli gegn Fram á heimavelli, 24-24.

Fjölmennum í Mýrina og hvetjum okkar stelpur til sigurs í þessum gífurlega mikilvæga leik sem er næst síðasti leikur þeirra fyrir jólafrí. Síðasti leikur þeirra verður svo 15. desember þegar þær taka á móti Norðanstúlkum.

ÁFRAM HAUKAR!!