Skákdeild Hauka úr leik.

Sveit Taflfélags Vestmannaeyja vann sigur á b-sveit Skákdeildar Haukar í 1. umferð (16 liða úrslitum) Bikarkeppni TG. Lokatölur urðu 10-2 en staðan í hálfleik var 6-0. Hellismenn lögðu hins vegar a-sveit Hauka að velli 9-3 en staðan í hálfleik 4½-1½. Báðar viðureignirnar fóru fram á Ásvöllum á fimmtudagskvöldið.
Einstaklingsúrslit urðu sem hér segir:

Skákdeild Hauka b-sveit – Taflfélag Vestmannaeyja:
1. Sigurjón Birgisson – Stefán Þór Sigurjónsson 1-1
2. Ingi Tandri Traustason – Einar K. Einarsson 0-2
3. Auðbergur Magnússon – Kofi Tatum 0-2
4. Sveinn Arnarson – Rúnar Berg 0-2
5. Einar G. Einarsson – Ægir Óskar Hallgrímsson 0-2
6. Snorri Karlsson – Ágúst Örn Gíslason 0-1
6. Sverir Þorgeirsson – Ágúst Örn Gíslason 1-0

Skákdeild Hauka a-sveit – Taflfélagið Hellir a-sveit:
1. Þorvarður F. Ólafsson – Kristján Eðvarðsson 1-1
2. Heimir Ásgeirsson – Bragi Halldórsson ½-1½
3. Stefán Freyr Guðmundsson – Sigurbjörn J. Björnsson ½-1½
4. Sverrir Örn Björnsson – Andri Áss Grétarsson 0-2
5. Jón Magnússon – Sigurður Daði Sigfússon 0-2
6. Eggert Lárusson – Björn Freyr Björnsson 1-1

Skákdeild Hauka óskar Helli og Tv til hamingju og óskar þeim velfagnaðar í komandi viðureignum.