Skákdeild Hauka í öðru sæti!!!

Skákdeild Hauka varð í öðru sæti í Íslandsmótinu í hraðskák.

Íslandsmeistarar Hróksins unnu sigur á Skákdeild Hróka í úrslitum hraðskákkeppni taflfélaga en lokatölur urðu 55½-16½ en staðan í hálfleik var 27-9.
Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson stóðu sig best Hróksverkja en Ásgeir P. Ásbjörnsson best Haukamanna.

Hróksmenn unnu 6-0 í fyrstu umferð en töpuðu reyndar 2½-3½ í 2. umferð. Frá með og í 3. umferð unnu Hróksmenn allar umferðir, enga þó 6-0.

Þetta er fyrsti sigur Hróksins í keppninni. Hrókurinn lagði Helli og TR á leið sinni í úrslit.

Einstaklingsúrslit:

Hrókurinn:
Jóhann Hjartarson 11 v. af 12
Stefán Kristjánsosn 11 v. af 12
Ingvar Þór Jóhanneson 9½ v. af 12
Tómas Björnsson 8½ v. af 12
Páll Þórarinsson 8 v. af 11
Lárus Knútsson 5 v. af 7
Róbert Harðarson 2½ v. af 4
Hrafn Jökulsson 0 v. af 2

Haukar:
Ásgeir P. Ásbjörnsson 5 v. af 12
Ágúst Sindri Karlsson 4 v. af 9
Auðbergur Magnússon 2 v. af 2
Þorvarður F. Ólafsson 2 v. af 10
Stefán Freyr Guðmundsson 1½ v. 9
Sverrir Örn Björnsson 1 v. af 9
Sigurður Sverrisson ½ v. af 6
Heimir Ásgeirsson ½ v. af 10
Jón Magnússon 0 v. af 5

Það var Taflfélagið Hellir sem stóð fyrir keppninni sem nú var haldin í 5. sinn. Hellir hefur sigrað 5 sinnum í keppninni, TR tvisvar, Skákfélag Hafnarfjarðar og nú Hrókurinn einu sinni hvor.
Skákdeild Hauka óskar nýbökuðum Íslandsmeisturum til hamingju með titilinn.
4. umferð (úrslit):
Skákdeild Hauka – Skákfélagið Hrókurinn 16½-55½

Þessi árangur okkar Haukamanna er frábær. Á leið okkar í úrslit slógum við út 2 annar deildar lið (Reykjanes og Selfoss) og fyrstu deildarlið Taflfélags Vestmannaeyja.
Til hamingju Skákdeild Hauka!!!