Ekki var árangur okkar Haukamanna góður í síðustu umferðinni sem fram fór í gær. Að vísu fengum við allir það hlutskipti að hafa svart, en stefndum þó að því að fá fleiri en einn vinning í skákunum fimm. Heimir mætti Guðmundi Kjartanssyni á 1.borði. Það er ljóst að Guðmundur hefur undirbúið sig vel fyrir skákina. Upp kom Laskerafbrigði Sikileyjarvarnarinnar og kom Guðmundur með óvæntan c4-leik í stöðu þar sem oft hefur verið þráleikið. Heimir fórnaði peði, en fékk ekki það spil sem hann vildi og því fór sem fór.
Undirritaður fékk það erfiða hlutskipti að þurfa að sækja sigur með svörtu gegn Davíð Kjartanssyni. Davíð dugði hins vegar jafntefli til að tryggja sér sæti í landsliðsflokki. Upp kom uppskiptaafbrigði spænska leiksins og var ekki mikið að gerast í stöðunni í upphafi. Þegar skákin leystist upp í endatafl fóru hlutirnir að gerast fyrir alvöru. Undirritaður hafði riddara og 4 peð gegn biskup og 4 peðum. Smám saman náði undirritaður að bæta stöðu sína og náði að koma sér upp öflugu frípeði á a-línunni. Staða svarts var á þessu augnabliki orðin mjög sigurvænleg, en vinningurinn var þó torsóttur og finna þurfti rétta planið. Hugsanlega missti ég af vinningnum í 43.leik þegar ég kaus að gefa h7-peðið mitt. Ég hélt alltaf að ég gæti í framhaldinu fórnað riddaranum mínum á h-peðið hans og unnið endataflið 2 peð á móti biskup. Sú staða kom að vísu upp í restina, en var þá kóngur svarts ekki eins virkur og í stöðunni sem ég hafði hugsað mér.
Hvítt: Davíð Kjartansson
Svart: Varði
1.e4-e5 2.Rf3-Rc6 3.Bb5-a6 4.Bxc6-dxc6 5.0-0-f6 6.d4-exd4 7.Rxd4-c5 8.Rb3-Dxd1 9.Hxd1-Bd6 10.Rc3-Bg4 11.f3-Be6 12.Be3-b6 13.a4-a5 14.Hd2-Bc4 15.Had1-Re7 16.Rc1-0-0-0 17.b3-Be5 18.R1a2-Bxc3 19.Rxc3-Hxd2 20.Hxd2-Ba6 21.g4-Hd8 22.Hxd8-Kxd8 23.g5-c4 24.gxf6-gxf6 25.Bd4-f5 26.Bf6-Kd7 27.bxc4-Bxc4 28.Kf2-fxe4 29.Rxe4-Bd5 30.Bb2-Bxe4 31.fxe4-Ke6 32.Ke3-Rc8 33.Ba3-Ra7 34.h4-Rc6 35.Kf4-Rd8 36.Bb2-Rf7 37.Bc3-Rd6 38.Be5-b5 39.axb5-Rxb5 40.c4-Rd6 41.c5-Rc4 42.Bc3-a4 43.Kg5-a3 44.Kh6-a2 45.Kxh7-Rd2 46.Kg6-Rxe4 47.Ba1-Rxc5 48.h5-Rd7 49.h6-Rf8 50.Kg7-Ke7 51.Bf6-Ke8 52.Kg8-Rd7 53.Bb2-Rf8 54.Bc3-Ke7 55.Bg7-Ke8 56.Bc3-Ke7 57.Bb2-Ke8 58.Bg7-Rg6 59.Bb2-Re7 60.Kg7-Rf5 61.Kg6-Rh6 62.Kxh6-Kf7 63.Kg5-Ke6 64.Kf4-Kd5 65.Ke3-Kc4 66.Kd2-Kb3 67.Bg7-c5 68.Bf6
Jafntefli.
Svenni tefldi Sikileyjarvörn gegn Jóhanni Helga og fékk á sig Morragambít. Það er í þessum sem og öðrum gambítum að svartur má alls ekki misstíga sig. Ef ég þekki Svenna rétt, þá lætur hann þetta tap ekki angra sig og mætir þaulstúderaður í næstu skák.
Ingi mætti hinum unga og efnilega Helga Brynjarssyni. Ég náði því miður ekkert að fylgjast með þessari skák, en Ingi þurfti að lokum að láta í minni pokann.
Snorri tefldi við Hörð Hauksson. Þegar þegar undirritaður leit á stöðuna var komið upp tvöfalt hróksendatafl. Mér fannst staðan vera eitthvað betri á Snorra, en niðurstaðan var samt sem áður jafntefli.
Lokastaða Haukamanna:
1. Heimir Ásgeirsson 6,5 (sæti í landsliðsflokki að ári!)
2. Þorvarður F. Ólafsson 6
3. Sveinn Arnarsson 5
4. Ingi Tandri Traustason 4,5
5. Snorri S. Karlsson 3,5
Þegar á heildina er litið held ég að Haukamenn geti verið sáttir við árangurinn. Heimir hefur eflaust verið svekktur eftir síðustu skákina, enda mjög nálægt því að vinna mótið. Landsliðssætið segir þó meira en mörg orð og verður gaman að fylgjast með honum að ári.
Undirritaður er einnig þokkalega sáttur við árangurinn. Vissulega var pínu súrt að ná ekki að svíða Davíð í síðustu skákinni og má segja að ekki hafi verið hægt að komast nær sæti í landsliðsflokki að ári. Undirritaður getur þó nagað sig í handarbökin yfir því að hafa ekki náð að leggja Magnús Kristinsson (sem ekki fékk punkt eftir jafnteflið á móti mér). Sömuleiðis hafði ég frumkvæðið í skákinni gegn Ingvari þegar ég bauð honum jafntefli og átti vinning gegn Guðmundi Kjartanssyni (hann átti reyndar vinning á móti mér líka fyrr í skákinni). Á móti kemur að ég var frekar heppinn að vinna Snorra H. Kristjánsson. Slæmt tap gegn Heimi gerði það svo að verkum að ég þurfti að vinna síðustu þrjár skákirnar. Ég fékk ekki nema 2,5 í síðustu þremur sem nægir þó sennilega til að ljúka mótinu með sóma.:o)
Svenni stóð sig hreint út sagt frábærlega. Hann var í flestum skákunum að tefla við sér stigahærri menn og getur með fimm vinninga farið mjög sáttur frá þessu móti.
Ingi og Snorri stóðu sig einnig vel en voru óheppnir frekar en hitt. Þeir fara þó frá mótinu reynslunni ríkari. Það verður gaman að fylgjast með þeir þremenningum (Svenna, Inga, og Snorra) á Boðsmóti Hauka sem mun halda áfram á fimmtudaginn.
Að lokum vona ég að menn hafi haft gagn og gaman af þessum pistlum mínum um skákþing Íslands.
Kær kveðja, Varði.