Skákþing Hafnarfjarðar -leiðrétting

Skákþing Hafnarfjarða 2005 verður haldið helgina 10-12 júní næstkomandi.

Teflt verður á annari hæð Íþróttamiðstöðvarinnar á Ásvöllum.

Teflt verður eftir Swissnesku kerfi.

Föstudaginn 10/6 verða tefldar 3 atskákir með umhugsunartímann 25 mín, og hefst taflið kl. 19.00.

Laugardaginn 11/6 verða tefldar 2 skákir með umhugsunartímann 1,5 á 30 leiki og 30 mín til að klára og hefst fyrri skákin kl. 10 og hin síðari kl. 16.30.
Sunnudaginn 12/6 verða tefldar 2 skákir með umhugsunartímann 1,5 á 30 leiki og 30 mín til að klára. Fyrri skákin hefst kl. 10 og sú síðari kl. 15.

Mótið verður reiknað til íslenskra og alþjóðlegra stiga.

Skákmeistari Hafnarfjarðar getur sá orðið sem að er búsettur í Hafnarfirði eða í hafnfirsku skákfélagi.

Verðlaun verða eftirfarandi:
1. 20000
2. 12000
3. 8000

Ef að keppendur verða 20 eða færri lækka verðlaunin niður í 11.000/6.000/3.000

Aukaverðlaun.
Undir 2000 skákstigum 5000 kr.
Undir 1600 skákstigum 5000 kr.
Undir 16 ára. 5000 kr.

Öllum verðlaunum verður skipt.

Þáttökugjöld eru 1.500 krónur fyrir félagsmenn í skákfélögum í Hafnarfirði, 2.500 fyrir aðra og 16 ára og yngri greiða 1.000. Stórmeistarar og alþjóðlegir meistarar borga ekki neitt.

Áhugasamir skrái sig í netfangið skak@haukar.is