Skákþing Hafnarfjarðar hafið

Mikil forföll skráðra keppenda setja svip sinn á Skákþing Hafnarfjarðar.

Veikindi herja á suma og aðrir hættu við.

Alls taka 9 keppendur þátt í mótinu.

Efstir eftir 3 atskákir sem tefldar voru í kvöld eru stigahæstu menn mótsins þeir Þorvarður F. Ólafsson sem á titil að verja og Alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason. Í síðustu umferð voru þeir reyndar stálheppnir báðir að vinna skákir sínar. Sævar gegn Páli þar sem Sævar labbaði beint inn í stúderingar Hazai frá því deginum áður og yfirburða staða staðreynd en Sævar varðist vel og líklega var jafntefli á borðinu þegar Páll féll.
Varði vann Svanberg eftir að hann barði hann í steindauðri endataflsstöðu (Riddari og peð gegn Biskup og 2 peðum og auðvelt að skorða), þeas. ef tíminn hefði verið aðeins meiri. Svanberg lék svo stöðunni niður í hrakinu, en báðir áttu þeir um 15 sekúndur eftir á klukkunni. Þorvarður þó aðeins meira. Ingi vann svo Sverri og stendur einnig vel af vígi.

Staðan eftir 3 umf. er eftirfarandi;
Place Name Feder Rtg Loc Score M-Buch. Buch.

1-2 Þorvarður F Ólafsson, Hauk 2126 2080 3 2.0 5.5
Sævar Jóhann Bjarnason, TV 2284 2280 3 2.0 4.0
3-5 Ingi Tandri Traustason, Hauk 1560 2 3.0 5.0
Svanberg Már Pálsson, TG 1505 2 3.0 4.5
Páll Sigurðsson, TG 1914 1795 2 3.0 4.0
6-8 Sveinn Arnarsson, Hauk 1610 1 3.0 6.5
Sverrir Þorgeirsson, Hauk 1946 1615 1 3.0 6.0
Snorri Sigurður Karlsson, Hauk 1450 1 2.0 3.0
9 Kristján Ari Sigurðsson, Hauk 0 2.0 5.0

Í 4. umferð sem er fyrsta umferðin sem kappskákir eru tefldar er pörun eftirfarandi:
No Name Result Name

1 Sævar Jóhann Bjarnason, (1) : Þorvarður F Ólafsson, (2)
2 Ingi Tandri Traustason, (6) : Páll Sigurðsson, (3)
3 Snorri Sigurður Karlsson, (8) : Svanberg Már Pálsson, (7)
4 Sveinn Arnarsson, (5) : Sverrir Þorgeirsson, (4)
5 Kristján Ari Sigurðsson, (9) 1:0 BYE