Skákþing Hafnarfjarðar 2005.

Skákþing Hafnarfjarða 2005 verður haldið helgina 10-12 júní næstkomandi.
Teflt verður á annari hæð Íþróttamiðstöðvarinnar á Ásvöllum.
Teflt verður eftir Swiss Monrad.
Föstudaginn 10/6 verða tefldar 3 atskákir með umhugsunartímann 25 mín, og hefst taflið kl. 19.00.
Laugardaginn 11/6 verða tefldar 2 skákir með umhugsunartímann 1,5 á 30 leiki og 30 mín til að klára og hefst fyrri skákin kl. 10 og hin síðari kl. 15.
Sunnudaginn 12/6 verða tefldar 2 skákir með umhugsunartímann 1,5 á 30 leiki og 30 mín til að klára.
Mótið verður reiknað til íslenskra og alþjóðlegra stiga.
Skákmeistari Hafnarfjarðar getur sá orðið sem að er búsettur í Hafnarfirði eða í hafnfirsku skákfélagi.
Verðlaun verða auglýst eftir helgi. Öllum verðlaunum verður skipt.
Þáttökugjöld eru 1.500 krónur fyrir félagsmenn í skákfélögum í Hafnarfirði, 2.500 fyrir aðra og 16 ára og yngri greiða 1.000. Stórmeistarar og alþjóðlegir meistarar borga ekki neitt. Áhugasamir skrái sig í netfangið skak@haukar.is