Skákþing Hafnarfjarðar.
Skákþing Hafnarfjarðar 2004 fer fram dagana 7-9/1 2005
Teflt verður í Álfafelli, Íþróttahúsinu Strandgötu. (Staðsetning gæti breyst)
Teflt verður eftir Swiss Monrad.
Föstudaginn 7/1 verða tefldar 3 atskákir með umhugsunartímann 25 mín, og hefst taflið kl. 19.00.
Laugardaginn 8/1 verða tefldar 2 skákir með umhugsunartímann 1,5 á 30 leiki og 30 mín til að klára og hefst fyrri skákin kl. 10 og hin síðari kl. 15.
Sunnudaginn 9/1 verða tefldar 2 skákir með umhugsunartímann 1,5 á 30 leiki og 30 mín til að klára.
Mótið verður reiknað til íslenskra og alþjóðlegra stiga.
Skákmeistari Hafnarfjarðar getur sá orðið sem að er búsettur í Hafnarfirði eða í hafnfirsku skákfélagi.
Verðlaun eru 1. sæti 20.000, 2. sæti 12.000 og 3. sæti 8.000.
Aukaverðlaun eru unglingaverðlaun, undir 16 ára, krónur 5.000, vöruúttekt í skákdeild Mál og menningar Síðumúla.
Sá sem verður hæstur skákmanna undir 2000 stigum íslenskum 10.000 krónur.
Öllum verðlaunum verður skipt.
Því miður tókst ekki vegna anna að halda þetta mót árið 2004.
Skráning fer fram í netfangið skak hjá(at) haukar.is
Alþjóðlegir og stórmeistar fá ókeypis aðgang.
Aðrir greiða 2.000 félagsmenn í skákfélögum í Hafnarfirði 1.500 og undir 16 ára 1.000.
Þeir sem að vilja nánari upplýsingar hafið samband í netfangið skak hjá(at) haukar.is eða í síma 821-1963 (Auðbergur)