6.umferðin á SÞG lauk í gær með 2 frestuðum skákum. Undirritaður mætti þar forystusauðnum Davíð Kjartanssyni og eygði með sigri sigur á mótinu. Ekki fór það svo vel og var undirritðuðum í rauninni pakkað saman af sterkari skákmanni.
Því miður veit ég lítið sem ekkert um þróun annarra skáka, en hef heyrt að Staða Sverris og Hrannars Baldurssonar hafi verið í jafnvægi allan tímann.
Úrslit Haukamanna í 6.umferð urðu þessi:
Þorvarður – Davíð Kjartansson 0-1
Sverrir Örn – Hrannar Baldursson 0,5-0,5
Sverrir Þ. – Sigurður H. 0,5-0,5
Sveinn – Patrick 0,5-0,5
Ingi – Júlíus Guðmundsson 0-1
Þorgeir – Þórir Ben. 0-1
Einar – Haukur Þorgeirsson 1-0
Staða Haukamanna fyrir lokaumferðina er eftirfarandi:
3-5. Sverrir Örn og Þorvarður 4
9-14. Sverrir Þorgeirsson og Sveinn Arnarson 3
15-16. Ingi Tandri og Einar G. 2,5
17. Þorgeir Sigurðsson 2