Skákþing Garðabæjar 5.umferð.

Í fimmtu umferðinni báru hæst tveir Haukaslagir og þar af einn nafnaslagur!

Sverrir Þorgeirsson lenti að mér sýndist snemma í erfiðri stöðu gegn nafna sínum Björnssyni, sem hafði svart. Eitthvað varð undan að láta og skiptamun yfir í endatafli náði Sverrir Örn að landa sigrinum.

Ingi Tandri og Sveinn mættust í hinum Haukaslagnum og hafði Ingi hvítt. Upp kom jöfn staða í drottningarbragði og endaði skákin með jafntefli.

Þorgeir hafði svart gegn Þorleifi Einarssyni. Mér fannst Þorgeir hafa jafnað taflið tiltölulega snemma en hugsanlega ekkert meir og niðurstaðan varð jafntefli.

Einar þurfti að kljást við sterkan andstæðing Þóri Benediktsson. Einar, sem hafði hvítt, varð fyrir því óláni að leika af sér peði í byrjuninni og eftir það var ekki aftur snúið.

Undirritaður att kappi við Jóhann H. Ragnarsson. Skákir okkar Jóhanns hafa ávallt verið mjög líflegar og dagsformið jafnan ráðið því hvorum megin vinningurinn hefur lent. Það er eitt sem maður verður að passa sig á þegar maður teflir við Jóa, en það er það að reyna að koma í veg fyrir það að hann fái “sínar stöður”. Við slíkar aðstæður er hætt við því að andstæðingur hans verði algjörlega planlaus og bíði bara eftir dauðanum! Slíkt henti mig einmitt í síðustu skák okkar Jóa og kom því ekki annað en sigur til greina í þessari skák!

Hvítt: Þorvarður F. Ólafsson
Svart: Jóhann H. Ragnarsson
Caro-Kann vörn.

1.e4-c6 2.d4-d5 3.exd5-cxd5 4.c4-Rf6 5.Rc3-g6 6.Db3-Bg7 7.cxd5-0-0 8.Be2-Rbd7 9.Bf3-Rb6 10.Bg5-Bg4 11.Bxf6-Bxf3 12.Rxf3-exf6 13.0-0-Dd6 14.Hfe1-Hfd8 15.Had1-a5?

Þar sem hvítur hefur ekki leikið a4 held ég að þetta verði að teljast slakur leikur.

16.a3

Til að koma í veg fyrir –Db4 sem myndi færa svarti fína stöðu.

16.-Hd7

Þessum leik hefði sennilega verið betra að leika strax í stað 15.-a5. Nú nær hvítur mjög öflugu frumkvæði.

17.Re4!-Dc7 18.d6-a4!

Eini leikurinn sem kemur í veg fyrir manns- eða skiptamunstap.

19.Db4-Dc6 20.Hc1-Rd5 21.Hxc6-Rxb4 22.Hc7-Hxc7 23.dxc7-Rd5 24.Hc1-Hc8 25.Rd6

Hér fannst mér hvíta staðan vera orðin kolunnin! Ég sá fyrir mér að svartur yrði nú að taka peðið á c7 með hrók. Ég ætlaði þá að fara í hrókakaup og taka svo peðið á b7. Hvítur ætti ekki að vera í vandræðum með að vinna þá stöðu, en Jói fann hér mjög góðan varnarleik!

25.-Bh6!

Mjög öflugur leikur sem mér yfirsást. Eftir uppskiptin á c7 hyggst svartur leika –Bc1 og herja á peðin mín tvö á b2 og a3.

26.Hc5-Hxc7 27.Hxc7

Leikurinn 27.Re1 sem Stefán Freyr stakk upp á kemur einnig til greina. Svartur myndi þá væntanlega fara í hrókakaup á c5 og leika svo –b6. Hvítur er klárlega með betra í þeirri stöðu, en vinningurinn gæti þó orðið torsóttur.

27.-Rxc7 28.Re1

Eitt er víst að ég verð ekki sakaður um það að hafa ekki teflt stíft til sigurs í þessari skák. Með textaleiknum er ég að reyna að forðast frekari uppskipti á peðum, og er planið að herja á peð svarts á drottningarvæng.

28.-b6 29.Kf1-f5 30.Rd3-Rd5 31.Ke2-Ke8 32.Rb5-Ke8 33.Rc3

Hér leið mér vel. Nú neyðist svartur til að skipta upp á riddurum, en við það treystist hvíta staðan og auðveldara verður að ráðast til atlögu á drottningarvæng.

33.-Rxc3 34.bxc3-b5 35.Rb4-Bf8 36.Rc2-Kd7 37.Kd3-Kc6 38.c4

Hvíta staðan er orðin mjög vænleg. Hvíti kóngurinn hefur unnið miðborðskapphlaupið og á hvítur ekki lengur möguleika á því að tapa skákinni. Hins vegar er spurning um það hvernig best er að sækja til sigurs.

38.-bxc4 39.Kxc4-Bd6 40.h3-h5 41.f3-f4 42.Rb4-Kb6 43.Rd5-Kc6?

Eftir 43.-Ka5 var ég ekki viss hvernig hægt væri að bæta stöðuna.

44.Rc3

Nú þarf hvítur ekki lengur að hafa áhyggjur af a-peði svarts.

44.-Bxa3 45.Rxa4-Kd6 46.Rc5-f5 47.Rd3-g5 48.Re5-Ke6 49.Rd3-Kd6 50.h4!

Ekki fæ ég betur séð en að eftir þennan leik sé hvíta staðan unnin! Freistandi var að fanga biskupinn með Kb3, en svartur fær þá mótspil með –Kd5! sem tryggir honum að minnsta kosti jafntefli því hvítu peðin verða ekki varin svo glatt!

50.-gxh4 51.Rxf4-Bc1 52.Rd3?

Af hverju tók ég ekki peðið á h5?? Að vísu var tími beggja keppenda orðinn mjög naumur hér, en planið með 50.h4 var drepa peðin á f4 og h5 í næstu 2 leikjum! Við hvað var ég hræddur? Jú, málið er það að ég sá drauga í stöðunni. Eins og áður segir ætlaði ég alltaf að drepa á h5 og hafði hugsað mér að svara 52.-Bg5 með hinum afgerandi 53.Rg7. Ég sá þá fyrir mér að í stað 52.–Bg5 myndi svartur betur leika 52.-Bh6. Einhvern veginn tókst mér að blanda saman þessum tveimur leikjum svarts og fékk þá flugu í höfuðið að riddarinn myndi lokast inni ! Að sjálfsögðu er riddarinn fjarri því að lokast inni, því eftir 52.-Bh6 leikur hvítur einfaldlega 53.Rf6 og vinnur. Eftir textaleikinn er vinningurinn aftur á móti orðinn torsóttur, ef hann er þá á annað borð til staðar!

52.-Be3 53.Re5-Kd6 54.Rg6-Kf6 55.Re5-Kg5 56.Kd3-Bf4 57.Rf7-Kf6 58.Rd8-Bc7 59.Rb7-Kg5 60.Rc5-Bd6 61.Re6-Kf6 62.d5

Er enn að reyna.

62.-Ke5 63.Kc4-Be7 64.Rd4-Bf8 65.Re6-Bd6 66.Rd4-Bf8 67.Re2-Bd6 68.Rd4

Hér kemur sama staðan upp í þriðja skipti og Jói krafðist jafnteflis. Ekki er að sjá að hvítur komist nokkuð áleiðis í þessari stöðu.

Svenni sagði í síðasta pistli að ég þekkti svona stöður eins og handabakið á mér og hefði án efa styrkleika á við 2700 stiga mann í endatöflum! Ég kann honum að sjálfsögðu bestu þakkir fyrir hrósið, en get þó ekki verið alveg sammála honum, því 2700 stiga maður hefði klárað þetta endatafl! Hins vegar get ég nagað mig í handabökin í þeirri von um að kynnast þeim betur! 🙂

Það má þó ekki taka neitt frá Jóa. Eftir að hafa misstígið sig illilega í byrjuninni, hefðu margir hengt haus og tapað fljótt. Jói var þó greinilega mættur til að tefla skák og hvað er skák án baráttu? Ég tel því að Jói hafi verðskuldað þetta jafntefli !

Staða Haukamanna eftir 5.umferðina er eftirfarandi:

2-4. Þorvarður 4
5. Sverrir Örn 3,5
7-15. Sverrir Þ., Svenni, og Ingi 2,5
16. Þorgeir 2
17-20. Einar 1,5