Skákþing Íslands (5.hluti).

Heimir heldur áfram sigurgöngu sinni á skákþingi Íslands og er nú orðinn einn efstur þegar einni umferð er ólokið. Heimir lagði Jóhann Helga með hvítu í slavneskri vörn í gær. Að mati Heimis gerði Jóhann Helgi þau mistök að skipta upp á góðum svartreitabiskup sínum fyrir riddara á c3. Í hönd fór mikil stöðubarátta sem síðar endaði í drottningarendatafli þar sem báðir höfðu 5 peð. Það má segja að allt hafi verið jafnt nema staðan. Heimir átti frípeð á d-línunni sem hann var búinn að ýta upp á 7.reitarröð. Þar sem Heimir var búinn að staðsetja drottningu sína á d6, gat Jóhann Helgi með engu móti komið kóngi sínum að þessu hættulega peði og var því tilneyddur til að hafa drottningu sína á d8 til að koma í veg fyrir nýja drottingu. Hvítur gat því í rauninni leikið marga leiki í röð án þess að svartur gæti hreyft sig. Með nokkrum nákvæmum leikjum knúði Heimir svo Jóhann Helga til uppgjafar.

Það er okkur Haukamönnum mikið gleðiefni að eiga nú fulltrúa í landsliðsflokki að ári, því Heimir hefur tryggt sér eitt af fjórum efstu sætunum. Heimir hefur þó enga ástæðu til að leggja árar í bát því með sigri á Guðmundi Kjartanssyni í síðustu umferð tryggir hann sér 1.sætið í mótinu, sem væri nú ekki amalegt að hafa á ferilsskránni.

Undirritaður heldur enn í vonina um að ná landsliðssæti, en hann sveið Guðna Stefán í gær. Guðni tefldi franska vörn eins og vanalega og brá undirritaður sér í smiðju Morozevich og tefldi hans frumlega system.

Hvítt: Varði
Svart: Guðni Stefán Pétursson

1.e4-e6 2.d3-d5 3.De2

Í Chess Assistant 7 hefur Moro fengið þessa stöðu upp 7 sinnum. Andstæðingar hans hafa verið þeir Rustemov, Kiriakov, Itkis, Volkov, Kanatov, Lputian, og Nikolic. Það er gaman að geta þess að Morozevich lagði þá alla í þessari byrjun!!! :o)

3.-dxe4 4.dxe4-e5 5.Rf3-Rc6 6.c3-Rf6 7.Dc2-Bd6 8.Rbd2-0-0 9.Rc4-De7 10.Bg5-a6 11.Re3-Be6 12.Rh4!-De8?!

Ekki góður leikur, en svartur var samt sem áður í vanda. Hann mátti ekki leika 12.-g6 vegna 13.Rhf5!-gxf5 14.exf5 og vinnur manninn til baka með sókn því ef biskupinn hörfar kemur 15.Rg4

13.Bxf6-gxf6 14.Be2-Bc5 15.Rg4-Bxg4 16.Bxg4-Kh8

Þar sem ég hef ekki skoðað þessa skák nægjanlega vel, treysti ég mér ekki til að koma með mjög ýtarlegar skýringar. Ég hef á tilfinningunni að ég sé ekki að tefla þetta nógu vel í framhaldinu og kannski hefði ég átt að hróka langt í þessari stöðu. Jæja, hvað um það, áfram með smjörið.

17.Dd2-Hg8 18.Bf5-Re7 19.g3-Hd8 20.De2-Rg6 21.Rf3-Db5

Í þessari stöðu bauð hann mér jafntefli.

22.Dxb5-axb5 23.a3-Kg7 24.Ke2-Hd6 25.Hhd1-Hgd8 26.Hxd6-Hxd6 27.Hc1-Re7 28.Bh3-Bb6 29.Hc2-Kf8 30.Hd2-Hxd2 31.Rxd2-Ke8 32.Bf5-h6 33.h3-c6 34.h4-Bc5 35.h5-Kd8 36.Rf3-Ke8 37.Rh2-Kf8 38.Rg4-Kg7

Aftur bauð hann mér jafntefli. Þessar riddaratilfærslur mínar voru nú bara til að ná tímamörkunum.

39.Rh2-Kf8 40.Rf3-Bb6 41.Bd7-Bc5 42.Re1-Bd6 43.Rd3-Kg7 44.Rc1-Kf8 45.Rb3-b6 46.g4-Bc7 47.Ra1-Bd6 48.Rc2-Kg7 49.Rb4-c5 50.Rc2-b4 51.cxb4-cxb4 52.Rxb4-Bc5 53.Rd3-Bd4 54.a4-Kf8 55.Kd2-Rg8 56.b4-Ke7 57.Bc6-Kd8 58.a5-bxa5 59.bxa5-Re7 60.Bd5-Rxd5 61.exd5-Kd7?

Ég er ekki fullkomnlega sáttur við þessa úrvinnslu hjá mér. Ég á að sjálfsögðu að vera löngu búinn að leika peðinu mínu til f3 (það er ekki eins og ég hafi ekki haft tíma til þess!). Hér gat hann gert mér erfitt fyrir með 61.-e4

62.f3-Kd6 63.Rb4-Kc5 64.Rc6-Bf2 65.a6-Kxd5 66.a7

1-0

Eftir þennan sigur er undirritaður í 4-5. sæti ásamt Guðmundi Kjartanssyni með 5,5 vinning. Ég þarf að mæta Davíð Kjartanssyni með svörtu í síðustu umferð og er líklegt að ég verði að vinna. Jafntefli gæti dugað, en maður nennir ekki að vera að pæla í einhverjum útreikningum.:o)

Svenni sýndi það gegn Jóhannesi Inga Árnasyni (1360) að árangur hans í mótinu til þessa er engin tilviljun. Jóhannes fékk strax erfiða stöðu og var Svenni fljótlega orðinn heilum hrók yfir. Eftirleikurinn var svo frekar auðveldur.

Það vill svo skemmtilega til að Svenni á möguleika á því að verða UNGLINGAMEISTARI ÍSLANDS!!! Til að það verði að veruleika þarf hann að vinna Jóhann Helga í síðustu umferð og Heimir að vinna Guðmund Kjartansson.

Ingi er að klifra upp töfluna og vann í gær góðan sigur með svörtu á Einari Sigurðssyni (1320). Ingi tefldi grótgarðinn eins og svo oft áður og vann að ég held á betri stöðuskilningi.

Óheppnin heldur aftur á móti áfram að elta Snorra. Í þetta skiptið varð tímahraksdraugurinn honum erfiður þegar hann lék af sér Drottningunni í betri/unninni stöðu gegn Matthíasi Péturssyni.

Staða Haukamanna fyrir lokaumferðina:

1. Heimir Ásgeirsson 6,5 (er efstur í mótinu!)
2. Þorvarður F. Ólafsson 5,5
3. Sveinn Arnarsson 5
4. Ingi Tandri Traustason 4,5
5. Snorri S. Karlsson 3

Í lokaumferðinni mætast síðan:

Guðmundur Kjartansson – Heimir Ásgeirsson
Davíð Kjartansson – Þorvarður F. Ólafsson
Jóhann Helgi Sigurðsson – Sveinn Arnarsson
Helgi Brynjarsson – Ingi Tandri Traustason
Hörður Hauksson – Snorri S. Karlsson