Þá eru 7 umferðir búnar á skákþingi Íslands og er Heimir á blússandi siglingu! Sigur hans á undirrituðum hefur eflaust gefið honum aukið sjálfstraust :o) og nú var Jói Ragg tekinn í kennslustund í Nimzo-indverjanum! Heimir hafði svart og fékk álíka stöðuyfirburði og Fischer fékk gegn Spassky í 5.skák einvígisins 1972. Það væri gaman ef Heimir myndi birta skákina hér á síðunni. Þegar tvær umferðir eru eftir er Heimir í 1-2. sæti ásamt Ingvari Jóhannessyni og haldi hann áfram að tefla eins og hann hefur gert, vinnur hann þær tvær skákir sem eftir eru! Fjögur efstu sætin gefa þátttökurétt í landsliðsflokki að ári og á Heimir alla möguleika á því að komast í hann!
Undirritaður er ekki enn búinn að gefa upp alla von um að komast í landsliðsflokkinn, en til að eiga möguleika verður hann að vinna báðar skákirnar sem hann á eftir.
Hvernig svarar maður því að vera flengdur?? Jú,jú, maður byrjar á því að læra af því og flengir svo næsta andstæðing!
Hvítt: Varði
Svart: Sigurður Kristjánsson (1900)
1.e4-c5 2.Rf3-g6 3.d4-cxd4 4.Rxd4-Bg7 5.Be3-Rf6 6.Rc3-0-0 7.Bc4-Rc6 8.f3-d6 9.Dd2-a6 10.0-0-0-Re5 11.Bb3-b5 12.h4-Rc4 13.Bxc4-bxc4 14.h5-Dc7 15.hxg6-fxg6 16.Bh6-e5 17.Bxg7-Dxg7 18.Rc6-Re8 19.Rd5-Bb7 20.Rce7-Kh8 21.Dg5-Hf7 22.Rxg6-Kg8 23.Rde7-Hxe7 24.Rxe7-Kf7 25.Dxg7-Rxg7 26.Hxh7
1-0
Enn einu sinni var Svenni að mæta stigahærri andstæðingi og þurfti að lúta í gras gegn Snorra H. Kristjánssyni (1785). Svenni fær Jóhannes Inga Árnason (1360) með hvítu í næstu umferð og teflir án efa til sigurs þar!
Ingi gerði jafntefli við Þóri Benediktsson (1760), og verða það að teljast fín úrslit fyrir Inga. Nú er það bara að klára mótið með stæl og hala inn nokkur elóstig!
Fínu stöðurnar sem Snorri hefur verið að fá eru loksins farnar að skila inn vinningum. Í gær lagði hann Eirík Örn Brynjarsson. Eins og áður sagði hefur Snorri verið að fá fínar stöður og hef ég fulla trú á því að hann fái a.m.k. 1,5 í tveimur síðustu!
Staða Haukamanna eftir 7.umferð:
1. Heimir Ásgeirsson 5,5
2. Þorvarður F. Ólafsson 4,5
3. Sveinn Arnarsson 4
4. Ingi Tandri Traustason 3,5
5. Snorri S. Karlsson 3
Í næstu umferð mætast:
Heimir Ásgeirsson – Jóhann Helgi Sigurðsson
Þorvarður F. Ólafsson – Guðni Stefán Pétursson
Sveinn Arnarsson – Jóhannes Ingi Árnason
Einar Sigurðsson – Ingi Tandri Traustason
Snorri S. Karlsson – Matthías Pétursson