Í gær fór fram 6.umferð á skákþingi Íslands. Sveinn Arnarsson, sem hefur staðið sig eins og hetja í mótinu, mætti nú ofjarli sínum Ingvari Jóhannessyni. Tefld var slavnesk vörn og fékk Svenni að mér fannst erfiða stöðu út úr byrjunninni þar sem Ingvar náði að stinga upp í hvítreitabiskup svarts, sem stóð á g6, með f3 og e4.
Skák umferðarinnar var tvímælalaust innbyrðisviðureign Haukamannanna Heimis og Varða. Það þurfti engan skáksnilling til að sjá það að þetta var leikur kattarins að músinni. Góð heimavinna skilaði Heimi verðskulduðum 25 leikja sigri. Heimir hafði hvítt og hófst skákin á sama hátt og skák okkar á gameknot.com nú fyrir skemmstu. Í 11.leik breytti Heimir út af og lék. 11.Rd2 í stað 11.h3 sem er algengast. Undirritaður kom alveg að tómum kofanum í þessu afbrigði og lék í framhaldinu hinum ónákvæma 13.-b6 í stað þess að reyna strax að sporna við e4-e5 framrásinni. Heimir færði sér þessa ónákvæmni vel í nyt og gerði út um taflið í nokkrum leikjum.
1.d4-Rf6 2.c4-g6 3.Rc3-Bg7 4.e4-d6 5.f4-0-0 6.Rf3-c5 7.d5-e6 8.Be2-exd5 9.cxd5-Bg4 10.0-0-Rbd7 11.Rd2(!!)-Bxe2 12.Dxe2-a6 13.a4-b6? 14.Rc4-Dc7 15.g4-h6? 16.e5+- -dxe5 17.fxe5-Hae8 18.Bf4-Dd8 19.Df3-Rh7 20.Hae1-f5 21.e6-fxg4 22.Dd3-g5 23.Bg3-Bd4 24.Kg2-Rdf6 25.Rd6
1-0
Ingi vann auðveldan sigur með svörtu á Daða Ómarssyni og andstæðingur Snorra sá þann kost vænstan að mæta ekki!
Staða Haukamanna eftir 6.umferð er þessi:
1. Heimir Ásgeirsson 4,5
2. Sveinn Arnarsson 4
3. Þorvarður F. Ólafsson 3,5
4. Ingi Tandri Traustason 3
5. Snorri Karlsson 2