Skákþing Íslands (2.hluti).

Jæja, þá eru fimm umferðir búnar á skákþingi Íslands. Fyrst ber að nefna frábæran árangur Sveins Arnarssonar, sem hefur hlotið fjóra vinninga nú þegar og er nú á eftir að fara að tefla á 1.borði gegn Ingvari Jóhannessyni ! Svenni hefur á leið sinni lagt tvo mun stigahærri kappa, þá Þóri Benediktson (1760) og Guðna Stefán Pétursson (2080!).

Við Heimir erum í 4-10. sæti með 3,5 v. og þurfum að mætast innbyrðis í 6.umferð. Heimir gerði í fyrradag jafntefli með svörtu við Davíð Kjartansson. Síðast þegar ég sá var Heimir peði yfir í endatafli (hrókur + biskup + 3 peð, gegn H + B + 2 peðum). Þar sem biskuparnir voru mislitir, var kannski erfitt fyrir Heimi að gera sér mat úr þessu.

Undirritaður hafði þó lítinn tíma til að spá í aðrar skákir, því hann stóð svo sannarlega í ströngu gegn Magnúsi Kristinssyni. Fyrir þá sem er annt um elostigin sín, er Magnús algjör martraðarandstæðingur. Hann er að tefla í sínu fyrsta móti síðan 1985, en þá hafði hann rétt rúm 1400 elóstig. Nú tæpum 20 árum síðar er hann án efa með styrkleika á við 2000 stiga mann! Ég hafði hvítt í þessari skák og upp kom Sikileyjarvörn. Mér fannst ég vera að fá mjög góða stöðu út úr byrjuninni, en honum tókst að snúa á mig með snjallri peðsfórn og hrifsa til sín frumkvæðið. Í næstu leikjum þjarmaði hann illilega að mér og um tíma var ég að leika eina leiknum trekk í trekk. Honum varð síðan á að tefla ónákvæmt og mér tókst að KOMAST ÚT Í ENDATAFL :o) þar sem ég var sennilega með unnið. Þá ákvað ég að bregða mér í hlutverk byrjandans og lék af mér kalli á vægast sagt fáránlegan hátt (eða eins og Þröstur Þórhallsson orðaði það í stúderingum eftir skákina “HVERNIG FÓRSTU AÐ ÞVÍ AÐ LEIKA AF ÞÉR BISKUPNUM Í ÞESSARI STÖÐU?”:o). Eftir mannstapið var ég náttúrulega kominn með koltapað tafl. Einhvers staðar segir þó að maður vinni ekki skák á því að gefa hana og mér tókst í framhaldinu að koma kóngi mínum í snoturt pattnet, sem gerði það að verkum að ég gat leikið hróki mínum í dauðan í hverjum leik án þess að andstæðingur minn mætti drepa hann. Hann gat þó unnið þessa stöðu með nákvæmri taflmennsku en sá ekki planið. Það má segja að viljinn og baráttan hafi fært mér hálfan vinning í þessari skák. Ég myndi ekki setja háan gæðastimpil á þessa skák, en sé mig þó tilneyddan til að birta hana eftir alla þessa lýsingu. :o)

Hvítt: Varði
Svart: Magnús Kristinsson

1.e4-c5 2.Rf3-d6 3.d4-cxd4 4.Dxd4-Rc6 5.Bb5-Bd7 6.Bxc6-bxc6 7.c4-Db6 8.Be3-Rf6 9.Dxb6-axb6 10.e5-Re4 11.exd6-c5! 12.0-0-Rxd6 13.b3-g6 14.Bf4-Bg7 15.Be5-f6! 16.Bb2-0-0 17.a4-Bc6 18.Re1-Hfd8 19.f3-Rf5 20.Rc2-Hd3 21.Rc3-Hd2?! 22.Hf2-Hxf2 23.Kxf2-Rd4? 24.Rxd4-cxd4 25.Rd5!-Bxd5 26.cxd5-Ha5 27.Bxd4-f5 28.Bxb6??-Ha6 29.He1-Hxb6 30.Hxe7-Bf8 31.Hd7-Hxb3 32.h4-Ha3 33.h5-Hxa4 34.hxg6-hxg6 35.Kg3-Ha6 36.Kf4-Hd6 37.Hb7-Hxd5 38.Kg5-Hd6 39.g4-fxg4 40.fxg4-Bg7 41.Hb1-Kf7 42.Hb7-Kg8 43.Hb1-He6 44.Hc1-Bf8 45.Hc7-Be7 46.Kh6-Kf7 47.Hc1-g5+ 48.Kh5-Kg7?! 49.Hc6!-He2 50.Hc2-He1 51.Hc1-He5 52.Hf1-Bf6 53.He1-Ha5 54.Ha1-Hd5 55.Ha5-Hd7 56.Ha7-Hf7 57.Ha8-Be7 58.Ha7-Kf6 59.Ha6-Ke5 60.Kg6-Hf6 61.Kh5-Kf4 62.He6-Hf7 63.He1-Kg3 64.Kg6-Hf6 65.Kh5-Bd8 66.Hg1-Kf2 67.Hd1-Be7 68.Hd7-He6 69.Hd5-Hc6?? 70.Hf5=-Kg3 71.Hf3-Kg2 72.Hg3-Kf2 73.Hf3
Jafntefli.

Undirritaður hefur reynt að fylgjast sem mest með frammistöðu samherja sinna. Að mínu mati hafa þeir Ingi Tandri og Snorri verið óheppnir. Báðir hafa þeir fengið fínar stöður á móti mun stigahærri mönnum, en vantað smá heppni og reynslu til að klára dæmið. Framtíð Haukamanna er þó björt og sé ég fram á miklar framfarir á næstu árum!

Eftir 5 umferðir er staða Haukamanna þessi:

1. Sveinn Arnarsson 4 vinningar.
2-3. Heimir Ásgeirsson 3,5 –
2-3. Þorvarður F. Ólafsson 3,5 –
4. Ingi Tandri Traustason 2 –
5. Snorri S. Karlsson 1 –

Skák mín gegn Snorra H. Kristjánssyni (1785) úr 2.umferð vakti nokkra athygli á skákstað. Ég valdi að tefla Sikileyjarvörn sem ég tefli sárasjaldan. Ástæðan var alls ekki vanmat, heldur framtíðarplön um fjölbreyttara byrjanaval. Þegar tölvur eru farnar að skapa svona mikinn sess í skákinni, er orðinn leikur einn að undirbúa sig fyrir skák þar sem andstæðingurinn teflir bara eina byrjun, (svo ekki sé talað um aðeins eitt afbrigði af byrjun). Ég hef oft átt í vandræðum með að leggja af velli lakari skákmenn með því að svara 1.e4 með 1.-e5 og má því segja að ég sé að ná mér í smá kappskákarreynslu af Sikileyjarvörn.

Hvítt: Snorri H. Kristjánsson
Svart: Varði

Sikileyjarvörn (lokaða afbrigðið).

1.e4-c5 2.Rc3-Rc6 3.g3-g6 4.d3-Bg7 5.Be3-d6 6.Dd2-Hb8

Heimir hefur verið að tefla þetta með góðum árangri og treysti ég honum fyllilega fyrir þessum leikjum!

7.Bg2-b5 8.Rf3-b4 9.Rd1-Bg4

Eins og áður hefur komið fram, hef ég litla reynslu af Sikileyjarvörn. Hér hefði ég sennilega átt að leika 9.-Rd4

10.0-0-Bxf3 11.Bxf3-Rf6 12.Be2-Dd7 13.Bh6-Bxh6 14.Dxh6-Rd4 15.Dd2-h5?!

Ég er að láta mig dreyma um það að komast í kóngsókn, en hefði sennilega betur leikið 15.-Db5 og ráðist til atlögu á drottningarvæng, eins og Chess Assistant stingur upp á.

16.Re3-Rg4? 17.Bd1!

Ég verð að viðurkenna það að ég bara hreinlega tók þennan leik ekki með í reikninginn. Nú standa riddarar mínir hálf asnalega og ég á ekki um annað að velja en að hrökklast til baka. Á þessum tímapunkti fannst mér ég vera kominn með verra.

17.-Re5 18.f4-Rg4 19.c3-bxc3 20.bxc3-Rxe3 21.Dxe3-Rc6 22.f5-Re5 23.d4-Rg4 24.Dg5

Hvítur hefur verið að bæta stöðu sína jafnt og þétt og er kominn með mjög sigurvænlegt tafl. Þegar hér var komið við sögu, var ég lagstur í þunglyndi við skákborðið og horfði ráðþrota til skiptis á stöðuna mína og tímann minn, sem var farinn að styttast ansi mikið í annan endann. En þá allt í einu………………..

24.-Db5!?

Þessi leikur bjargar kannski ekki skákinni, en hann flækir taflið all verulega, sem er að sjálfsögðu mér í hag! Hótunin er einfaldlega sú að leika drottningunni á b2 og máta. Hvítur á ekki gott með að valda 2.reitarröðina og verður nú að finna góða varnar/sóknarleiki.

25.Hb1??

Sennilega tapleikurinn (eftir 25.fxg6-Db2 26.Dh4 hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum). Hvítur er tilbúinn að gefa báða hróka sína fyrir drottningu svarts og reiknar væntanlega aðeins með 25.-Dxb1, sem hann myndi svara með 26.Ba4+, en svartur getur farið betur í þetta.

-Dxf1!+ 26.Kxf1-Hxb1 27.fxg6?

Hvítur hefur ekki efni á því að gefa biskupinn í þessari stöðu, en sennilega er staðan töpuð hvort eð er.

27.-Hxd1+ 28.Ke2-Hh1 29.Df5

Ég hefði svarað 29.gxf7+ með Kf8-+, og 29.g7 með 29.-Hg8 30.Dxh5-Rf6 -+

29.-Hxh2+ 30.Kd3-c4+(!!)

Skemmtileg stunga sem vinnur drottninguna. Þegar Svenni sá þennan leik í stúderingum sagði hann “OHH! ÞETTA ER SVO TÝPISKUR ÞÚ VARÐI!”. Persónulega var ég þó að vonast eftir 30.Ke1 sem ég ætlaði að svara með því að hróka stutt !! Ennþá skemmtilegri killer! :o)))

0-1

Kveðja, Varði.