Skákþing Íslands.

Fimm vaskir skákmenn úr skákdeild Hauka taka nú þátt í áskorendaflokknum á Skákþingi Íslands sem nú stendur yfir. Þetta eru þeir Þorvarður Fannar Ólafsson, Heimir Ásgeirsson, Sveinn Arnarsson, Ingi Tandri Traustason og Snorri Karlsson.

Nú eru tveim umferðum lokið á mótinu og hefur Þorvarður Fannar Ólafsson fullt hús stiga. Hann vann Snorra H. kristjánsson í dag, sunnudag þar sem hann gaf drottningu fyrir tvo hróka og átti síðan trompið(killer) c4!! í bakhöndinni. Skora ég á Þorvarð að sýna þá skák hér á síðunni seinna.

Heimir Ásgeirsson att kappi við Ingvar Þór Jóhannesson og stýrði hann svörtu mönnunum í þeirri skák. Heimir var með fína stöðu um tíma í skákinni og átti hann marga góða möguleika í skákinni. Tímahraksdraugurinn var honum þó erfiður og féll hann á tíma í endatafli sem þó var unnið fyrir Ingvar.

Sveinn Arnarsson lék með hvítt á móti Garðbæingnum Jóhanni H. Ragnarssyni. Upp kom Caro-Kann vörn og þótt Sveinn hafi reynt að brydda upp á nýjungum eins og 7.R1e2 kom hann engum vörnum við og Jóhann(mulningsvélin) vann hartnær auðveldlega.

Ingi Tandri Traustason tefldi við Pál Snædal Andrason. Það má til gamans geta að Ingi sagðist hafa teflt tvískák alla skákina vegna þess að annar lítill og „hress“ náungi, vinur Páls stóð yfir borðinu nær allan tímann og spekúleruðu þeir mikið saman um skákina. Ingi lét það ekkert á sig fá þótt hann tefldi við tvo einstaklinga og vann drottningu með fallegum riddaraleik á f4 að mig minnir.

Snorri karlsson átti lang lengstu skákina í annarri umferðinni og tók hún alls 5klst og 45 mínútur. Snorri stýrði svörtu mönnunum á móti Jóhannesi Inga Árnasyni og náði góðri stöðu úr byrjuninni. Seinna í skákinni var Snorri með hrók, biskup og sex peð á móti drottningu og 3 peðum. honum tókst þó ekki að færa sér liðsmuninn í nyt, enda staðan ótrúlega erfið, og jafntefli varð raunin.

Staða Haukamanna er þá þessi.

1. Þorvarður Fannar Ólafsson 2v.
2-4. Heimir Ásgeirsson 1
2-4. Ingi Tandri Traustason 1
2-4. Sveinn Arnarsson 1
5. Snorri Karlsson 0.5