Það var ágætismæting á æfinguna 7. febrúar eða 16 skákmenn. Varði sigraði með 13 vinninga af 15, en hann gerði jafntefli við Danna og Guðmund og tapaði einni skák – gegn Sverri junior. Sverrir varð svo annar með 12 vinninga og Stefán Freyr þriðji með 11 v og Stefán getur vel við unað því hann tók upp á því að hefja allar skákir með 1.d4 og með svörtu lék hann ávallt 1.-d5, sem að sjálfsögðu telst vafasamt, enda þá sokkinn í kviksyndi drottningarbragðs og fúapytti Skandínavans.
Lokastaðan varð annars þessi:
1.Varði 13v.
2.Sverrinho 12
3.Stefán Freyr 11
4.Jón 9,5
5.Aui 9
6-7.Árni 8,5
6-7.Svanberg 8,5
8-9.Ingi 8
8-9.Raggi 8
10-11.Ingþór 6,5
10-11.Danni 6,5
12.Stefán P 5,5
13-14.Guðmundur 4,5
13-14.Geir 4,5
15.Kristján 3,5
16.Rúnar 1