Skákæfing 4.október

Jæja, þar kom loks að því sem menn hafa verið að búast við, að Sverrir Þorgeirsson myndi sigra á Haukaæfingu! Þátttakendur voru 16. Þeir Sverrir og Varði voru í algjörum sérflokki á æfingunni og var það vel við hæfi að þeir skyldu mætast í lokaumferðinni, þar sem um hreina úrslitaskák var að ræða. Varði hafði hvítt og náði snemma betri stöðu sem hann hélt lengst af. Sverrir varðist með miklum ágætum og komst út í lakara hróksendatafl þar sem allt gat gerst. Í tímahrakinu náði Sverrir svo að snúa á Varða og knýja fram sætan sigur. Sverrir endaði því með aðeins hálfan niður, en hann gerði jafntefli við Inga. Lokastaðan varð annars eftirfarandi:

1. Sverrir Þorgeirsson 14,5 af 15

2. Þorvarður Fannar 14

3. Páll Sigurðsson 11

4-5. Jón Magnússon 10,5
4-5. Rögnvaldur Jónsson 10,5

6. Ingi Tandri 9,5

7. Snorri Karlsson 8

8. Stefán Pétursson 7,5

9-11. Baldur Snæhólm 6
9-11. Ragnar Árnason 6
9-11. Sverrir Gunnarsson 6

12. Kristján Ari Sigurðsson 5,5

13-14. Arnar Jónsson 4,5
13-14. Geir Guðbrandsson 4,5

15-16. Rúnar Jónsson 1
15-16. Herbert 1

Til hamingju Sverrir! Vel af sér vikið og ljóst að þessi frammistaða gefur góð fyrirheit um komandi baráttu í deildó um helgina. :o)