Þorvarður Fannar vann góðan sigur á lokaæfingu tímabilsins. Þátttakendur voru átta og var tefld tvöföld umferð.
Varði átti frábært mót og náði að leggja alla andstæðinga sína af velli, á meðan hans helstu keppinautar Heimir og Jón voru talsvert frá sínu besta.
Ingi Tandri átti sömuleiðis mjög gott mót og hefði með jafntefli gegn Snorra í lokaumferðinni getað tryggt sér óskipt 2.sætið. Það tókst ekki og náði Heimir honum því að vinningum.
Lokastaðan:
1. Þorvarður Fannar 14 af 14.
2-3. Ingi Tandri 10
2-3. Heimir Ásgeirsson 10
4. Jón Magnússon 8
5. Snorri Karlsson 6
6. Kristján Ari Sigurðsson 5,5
7. Brynjar Ísak Arnarsson 1,5
8. Geir Guðbrandsson 1