Við vorum 6 sem mættum á æfinguna fyrir rúmri viku síðan og var tefld þreföld umferð. Geir sýndi það og sannaði að hann er í mikilli framför um þessar mundir. Hann gerði sér lítið fyrir og fékk 2,5 vinning gegn Daníel og var óheppinn að fá aðeins hálfan gegn Varða. Lokaskák Geirs og Varða endaði mjög verðskuldað með jafntefli eftir að upp kom mislitt biskupaendatafl. Geir átti hins vegar kost á afgerandi vinningsleik gegn mér í annarri skákinni!
Lokastaðan:
1. Þorvarður Fannar 13,5 af 15.
2. Daníel Pétursson 10
3-4. Geir Guðbrandsson 7,5
3-4. Guðmundur Guðmundss. 7,5
5. Stefán Pétursson 5,5
6. Ragnar Árnason 1