Skákæfing 22. febrúar

Ég biðst forláts vegna þess að ég hef ekki birt þessi úrslit fyrr. Eins og áður í febrúar vantaði nokkra sterka skákmenn á æfinguna og má þar sérstaklega nefna fjóra sem við erum farnir að sakna. Þeir eru Grímur, Heimir, Sverrir Örn og Snorri Karls, Hér með er lýst eftir þeim!

Á þessari æfingu voru nokkrir tilkallaðir, en að lokum börðust tveir um sigurinn, Jón og Sverrir Þ.
Svo fór að lokum að Jón hafði þetta með 1/2 vinningi eftir að hafa aðeins misst einn vinning í hendurnar á sjálfum Sverri. Sverrir tapaði hins vegar fyrir Páli og gerði jafntefli við Inga.

úrslit:

1.Jón Magnússon 12
2.Sverrir Þorgeirsson 11,5
3.Páll Sigurðsson 10
4.Ingi Tandri Traustason 9,5
5.Stefán Pétursson 8,5
6.Auðbergur Magnússon 8
7.Brynjar Arnarsson 6
8.Ragnar Árnason 5,5
9-10.Arnar Jónsson 5
9-10.Kristján Ari Sigurðsson 5
11.Sverrir Gunnarsson 4,5
12.Baldur Snæhólm Einarsson 3
13.Geir Guðbrandsson 2,5
14.Rúnar Jónsson 0