Heimir Ásgeirsson vann góðan sigur á sterkri æfingu sem fram fór síðastliðið þriðjudagskvöld. Þátttakendur voru 14. Formaðurinn gat því miður ekki verið með þar sem hann var tímavörður í leik Hauka og Vals í Haukahúsinu þetta sama kvöld. Já, það verður seint sagt um hann Aua að hann hafi lítið að gera. 🙂
Eftir tap gegn Inga Tandra í fyrstu umferð setti Heimir í fluggírinn og lagði alla andstæðinga sína eftir það. Björn Freyr var reyndar ekki langt undan, en tap gegn Jóni Magnússyni gerði sigurvonir hans að engu. Úrslit urðu annars sem hér segir:
1….Heimir Ásgeirsson…….12 af 13.
2….Björn Freyr Björnsson…11
3-4..Sverrir Örn Björnsson…9,5
3-4..Þorvarður F. Ólafsson…9,5
5….Jón Magnússon………..8,5
6….Ingi Tandri Traustason…8
7-8..Stefán Pétursson………7
7-8..Sverrir Þorgeirsson……7
9-10.Guðmundur Guðmundsson….5
9-10.Snorri Karlsson……….5
11…Sverrir Gunnarsson…….4
12…Kristján Ari Sigurðsson..3
13…Baldur Snæhólm……….1,5
14…Rúnar Jónsson…………0
Þar sem einungis 6 manns höfðu tök á því að tefla lengur, var ákveðið að slá upp öðru móti í lokin. Úrslit í því móti urðu:
1.Þorvarður Fannar…..5 af 5.
2.Heimir Ásgeirsson….4
3.Ingi Tandri……….3
4-5.Jón Magnússon…..1,5
4-5.Snorri Karlsson…1,5
6.Sverrir Örn……….1