Skákæfing 18.janúar 2005

Alls mættu 13 manns á skákæfinguna í gærkveldi. Líkt og í síðustu viku vantaði nokkra af sterkustu mönnunum, en Haukamenn hafa hafa fjölmennt á Skákþing Reykjavíkur sem nú stendur yfir. Jón Magnússon tók með sér hið bráðefnilega barnabarn sitt, Brynjar Ísak, og stóð þessi 9 ára drengur sig eins og hetja á æfingunni. Úr skákunum 12 hlaut hann 3,5 vinning og var auk þess að falla á tíma með góðar stöður. Þá tók það undirritaðan um 60 leiki að knýja fram sigur gegn honum. Án efa ein af framtíðarstjörnum okkar Íslendinga!

1. Þorvarður Fannar 12

2. Grímur Ársælsson 9,5

3-4. Sverrir Þorgeirsson
Daníel Pétursson 9

5. Ingi Tandri Traustason 8,5

6. Jón Magnússon 7

7. Ragnar Árnason 6,5

8. Sverrir Gunnarsson 5

9. Geir Guðbrandsson 4

10. Brynjar Ísak Arnarsson 3,5

11-12. Kristján Ari Sigurðsson
Baldur Snæhólm 2

13. Rúnar Jónsson 0

Þá var komið að hinni geysivinsælu liðakeppni og voru liðin skipuð eftirfarandi skákmönnum:

Lið-A: Varði, Sverrir Þ., Ingi, Sverrir G., Geir, Aui.

Lið-B: Grímur, Daníel, Jón, Raggi, Kristján, Baldur.

B-liðið tók snemma frumkvæðið og vann að lokum öruggan sigur 20-16.