Skákæfing 14/12. 2004

Sigurbjörn Björnsson vann verðskuldaðan sigur á skákæfingunni í gærkveldi. Þátttaka var mjög góð eða 20 manns, sem er næstbesta mætingin í vetur! Eftir tap gegn undirrituðum í 2.umferð, setti Sigurbjörn í fluggírinn og lagði alla andstæðinga sína eftir það!

Í upphafi æfingarinnar var undirrituðum falið það hlutverk að sjá um bókhaldið. Undirritaður var þó engan veginn að höndla þessa ábyrgð og gerði sig þar að auki sekan um að setjast í vitlaust sæti við upphaf 3.umferðarinnar, með þeim afleiðingum að hið annars trausta, góða, og sáraeinfalda niðurröðunarkerfi okkar riðlaðist. Það var því vel við hæfi að Ragnar Árnason skyldi leggja Varða í þessari umferð! Þetta var kærkominn sigur hjá Ragga því oft hefur Varði verið stálheppinn á móti honum! Varði gerði jafntefli við þá Daníel og Árna og vann svo rest, sem verður að teljast góður árangur!

Afmælisbarnið Stefán Freyr Guðmundsson var einnig á góðri siglingu og hafnaði í 3.sæti.

1. Sigurbjörn Björnsson 18v. af 19

2. Þorvarður Fannar 17

3. Stefán Freyr 16

4. Heimir Ásgeirsson 14,5

5. Daníel Pétursson 13

6. Árni Þorvaldsson 12

7. Sigurður P. Guðjónsson 11,5

8-10. Svanberg Már Pálsson
Auðbergur Magnússon
Jón Magnússon 11

11-12. Sverrir Þorgeirsson
Stefán Pétursson 9,5

13. Snorri Karlsson 8,5

14. Ingi Tandri Traustason 7,5

15. Ragnar Árnason 7

16. Guðmundur 5

17. Sverrir (eldri) 3

18. Herbert 2,5

19. Rúnar Jónsson 1

20. Geir 0,5