Gaman var að 20 manns skyldu láta sjá sig á þriðjudagskvöldið var, en þetta er fjölmennasta Haukaæfing í langan tíma. Svanberg þurfti reyndar að fara um miðbik mótsins, en formaður vor sem oft hefur ekki átt heimangengt svona snemma á kvöldin kom sterkur inn í seinni hlutanum.
Heimi tókst að vinna sína aðra æfingu í röð eftir geysiharða baráttu við þá Sverri Örn og Varða. Óhætt er að segja að þessir þrír skákmenn hafi verið í sérflokki á æfingunni, því heilum þremur vinningum munaði á 3.- og 4. sætinu. Árni var nokkuð öruggur í 4.sætinu þrátt fyrir að hafa keyrt sig gjörsamlega út í fjórum dramatískum tímahraksskákum í röð! Fjórir skákmenn komu svo jafnir í 5.sætinu! Rúnar Jónsson hefur líklega aldrei teflt eins vel á Haukaæfingu. Vinningatala hans gefur engan veginn rétta mynd af taflmennskunni, en hann var að falla á tíma með unnar stöður. Af þeim skákum hans sem undirritaður sá, átti hann skilið að fá a.m.k. 2,5 vinning til viðbótar.
Lokastaðan varð annars eftirfarandi:
1…..Heimir Ásgeirsson…….. 17v. af 18
2-3…Sverrir Örn Björnsson…. 16,5
2-3…Þorvarður F. Ólafsson…. 16,5
4…..Árni Þorvaldsson……… 13,5
5-8…Ingi Tandri Traustason… 12
5-8…Jón Magnússon………… 12
5-8…Stefán Pétursson……… 12
5-8…Sverrir Þorgeirsson…… 12
9-10..Snorri Karlsson……….. 9
9-10..Svanberg/Auðbergur…….. 9
11….Grímur Ársælsson……… 7,5
12-13.Arnar Jónsson…………. 7
12-13.Sverrir Gunnarsson…….. 7
14….Kristján Ari Sigurðsson… 6
15….Ragnar Árnason………… 5
16….Baldur Snæhólm………… 4
17….Marteinn……………… 3
18-19.Rúnar Jónsson…………. 1
18-19.Sveinn……………….. 1